top of page


Tengjum fjármagn
og framtíð
Samstarfsvettvangur fyrir innviðaverkefni um land allt
Innviðafélag Íslands er samtarfsvettvangur lífeyrissjóða um lánsfé fyrir innviðaverkefni. Framundan er mikil uppbygging á innviðum hér á landi með aðkomu fleiri aðila en hins opinbera, enda mikil þörf. Við erum þátttakendur í þeirri vegferð. Má þar nefna fjárfestingu í innviðum eins og vegakerfi, virkjunum, brúarvirkjum, flugvöllum og fjarskiptum, sem og sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum, skólum og öðrum samfélagslegum byggingum.
Að baki Innviðafélags Íslands stendur styrkur hópur lífeyrissjóða sem vill styðja við mikilvæg samfélagsverkefni. Samstarfsvettvangurinn hefur m.a. þá sérstöðu að geta tekið þátt í verkefnum frá upphafi, þ.e. boðið upp á framkvæmdafjármögnun og verið þannig þátttakandi frá upphafi.
Í skýrslu Samtaka iðnaðarins frá árinu 2025 er áætlað að uppsöfnuð viðhaldsþörf sé 680 milljarðar á núverandi innviðum. Auk þessara viðhaldsverkefna er mikil þörf á nýfjárfestingu í innviðum. Þörfin fyrir lánsfé fyrir þessi mikilvægu verkefni er því mikil og við erum hreyfiafl í þeirri vegferð.
bottom of page